Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir fólki til starfa við liðveislu fatlaðra

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir fólki til starfa við liðveislu fatlaðra

Hvað er liðveisla?
Liðveisla er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum.

  • Starf liðveitanda felst í að aðstoða einstaklinga í ýmsum daglegum athöfnum, persónulegri ráðgjöf og aðstoð sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun.
  • Liðveisla felst því í að fara með viðkomandi í bíó, leikhús, kaffihús, bókasafn, eiga notalegt spjall, bíltúr sem notandi greiðir fyrir sjálfur, gönguferð og fleira.
  • Samkvæmt reglum Félagsmálaráðs Dalvíkurbyggðar á hver einstaklingur rétt á tólf klukkustundum í liðveislu á mánuði nema að félagsmálaráð hafi samþykkt annað.

 

Hæfniskröfur:

  • Hlýlegt viðmót, jákvæðni og umhyggja
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
  • Að sýna ábyrgð og vera ábyrgðarfullur
  • Að vera hugmyndaríkur og sveigjanlegur

 

Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 5. apríl 2017

Frekari upplýsingar veitir Þórhalla Franklín Karlsdóttir, þroskaþjálfi í síma 460-4900 eða á netfanginu tota@dalvikurbyggd.is .  Umsókn og ferilskrá skal senda inn á Mín Dalvíkurbyggd (inná heimasíðu www.dalvikurbyggd.is ) eða skila í þjónustuver bæjarskrifstofunnar. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu.