Félagsmiðstöð opnar í dag eftir breytingar

Félagsmiðstöðin okkar opnar aftur eftir breytingar í dag, mánudaginn 14. nóvember. Í tilefni á því blásum við til veislu og bjóðum öllum áhugasömum íbúum Dalvíkurbyggðar í heimsókn. Nýja félagsmiðstöðin verður vígð við hátíðlega athöfn í Víkurröst klukkan 17:00 – 18:30. Forseti bæjarstjórnar Guðmundur St. Jónsson mun klippa á borðann og í kjölfarið verður nýtt nafn félagsmiðstöðvarinnar kynnt. Ætlunin er að bjóða upp á vöfflur, kaffi og annað góðgæti.

Allir velkomnir