Fasteignagjöld og útsvar árið 2016

DALVÍKURBYGGÐ
Fasteignagjöld og útsvar árið 2016

Útsvarsprósenta árið 2016 er 14,52%

Álagning fasteigna- og þjónustugjalda 2016

Álagning gjalda

Álagning fasteignaskatts og lóðarleigu byggist á fasteignamati húsa og lóða í Dalvíkurbyggð frá 1. febrúar 2015. Matið er framkvæmt af Þjóðskrá Íslands samkvæmt V. kafla laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Álagning fasteignagjalda og leiðréttingar fer fram á vegum umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar en fjármála – og stjórnsýslusvið sér um reikningagerð og innheimtu. Álagning vatnsgjalds, fráveitugjalds og sorphirðugjalds er samkvæmt sérstökum gjaldskrám, en þær má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.dalvikurbyggd.is/Stjornsysla/Fjarmala--og-stjornsyslusvid/Gjaldskrar-A---O/


Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur


Íbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.
Fasteignaskattur A 0,49% af fasteignamati húss og lóðar.
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
Sorphirðugjald kr. 34.638,- á íbúð.
Frístundahús kr. 17.319,- á hús.


Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur


Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005
Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar.
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.


Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkur


Aðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.
Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar.
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá.


Lóðarleiga


Lóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar.
Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar.
Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar.

Vatnsgjald
Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:
a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 8.634,07 kr. pr. íbúð og 205,05,- kr. pr. fermetra húss.
b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 17.268,13 kr. pr. eign og 205,05 kr. pr. fermetra húss.
c) Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
d) Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,2% af fasteignarmati allra húsa og lóða.


Fráveitugjald


Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins og skal það vera eftirfarandi:
a) Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 12.951,10 kr. pr. íbúð og 291,40 kr. pr. fermetra húss.
b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 32.377,74 kr. pr. eign og 291,40 kr. pr. fermetra húss.
c) Árlegt rotþróargjald sem lagt er á hverja íbúð, þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár, er kr. 11.872,90 kr. pr. losun. Að auki er greitt fast gjald 12.951,10 kr. pr. á hverja íbúð.
d) Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða.


Afsláttur fasteignaskatts til elli- og örorkulífeyrisþega


Samkvæmt reglum um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega þá er afsláttur fasteignaskatts og tekjutenging sem hér segir:
Elli- og örorkulifeyrisþegar fá allt að kr. 59.148 ,- afslátt fasteignaskatts af eigin íbúð sem þeir búa sjálfir í. Afsláttur til elli- og örorkulifeyrisþega er tekjutengdur sem hér segir:
a) Einstaklingur með tekjur allt að kr. 2.171.516,-
b) Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 2.996.977,-

Sjá nánar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar:
/static/files/PDF/fjarmala/151124.Reglur-um-afslatt-til-elli--og-ororkulifeyristhega-2016.pdf


Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda


Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.


Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendur út á pappírsformi nema til þeirra sem þess óska sérstaklega. Greiðslukröfur birtast í heimabönkum og reikningar eru aðgengilegir rafrænt á Mín Dalvíkurbyggð( http://min.dalvikurbyggd.is/ ). Innskráning er með Íslykli eða rafrænu skilríki.


Álagningarseðlar fasteignagjalda.


Álagningarseðlar fasteignagjalda eru almennt ekki sendir út á pappírsformi nema til þeirra sem þess óska sérstaklega. Álagningarseðlar eru aðgengilegir greiðendum á Island.is (https://www.island.is/ ) og Mín Dalvíkurbyggð (http://min.dalvikurbyggd.is/ ). Innskráning er með Íslykli eða rafrænu skilríki.


Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar, í síma 460-4900 eða á www.dalvikurbyggd.is