Fannar Ingi 5 ára

Fannar Ingi 5 ára

Á sunnudaginn, 9. október, verður Fannar Ingi 5 ára. Af því tilefni hélt hann upp á afmælið sitt í leikskólanum í dag. Hann bjó sér til myndarlega kórónu, flaggaði íslenska fánanum, bauð upp á ávexti í ávaxtastund og var svo þjónn í hádeginu. Börn og kennarar sáu svo um að syngja fyrir hann afmælissönginn. Við óskum Fannari Inga og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.