Fannar 4 ára

Fannar 4 ára

Í dag, 9 október er Fannar 4 ára. Fannar byrjaði daginn á því að flagga með aðstoð Dóru og Ásu. Hann gerði sér svo kórónu í tilefni dagsins. Við óskum Fannari innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Kátakoti.