Fallegar jólaskreytingar

Dalvíkurbyggð mun standa fyrir vali á fallegum jólaskreytingum og mun jólanefnd með sérstök jólaaugu fyrir smekklegheitum fara um byggðalagið í kringum 15. desember og velja athyglisverðar skreytingar. Veitt verða verðlaun fyrir fallegar og vandaðar skreytingar. Einnig sérstakar viðurkenningar. Gengið verður frá vali og verðlaun afhent fyrir jól.  Svo nú er að hefjast handa og taka fram jólaskrautið. Og í þessu sem öðru gilda gæðin en ekki magnið.