Eyþór Ingi í beinni í Víkurröst

Eyþór Ingi í beinni í Víkurröst

Samkoma verður á morgun föstudag í Víkurröst þar sem fylgst verður með okkar manni í Bandinu hans Bubba á stöð 2. Húsið opnar klukkan 19:30 og þátturinn byrjar 19:55. Sjoppa verður opin.
Eyþór Ingi mun syngja tvö lög á morgun. Annað þeirra er frumsamið lag og kallast "Rökkur". Hitt lagið er "Starlight" eftir Trúbrot sem Jet Black Joe gerði vinsælt aftur fyrir nokkrum árum.
Allir eru velkomnir í Víkurröst, en börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.