Eurovision þorpið Dalvík

Eurovision þorpið Dalvík - 10 ára afmæli Dalvíkurbyggðar
Dagskrá  - Tökum þátt, gleðjumst saman og styðjum okkar fólk


Meðfylgjandi er Eurovision getraunaseðill fyrir fimmtudagskvöldið - honum má skila í Olís fyrir kl. 18 þann 22.05 - Glæsileg verðlaun m.a. Eurobandsdiskurinn og vinningar frá Vífilfell og Nýja bíói. Einnig hægt að senda  löndin tíu á julli@julli.is


Við hvetjum alla til að.
Skreyta, setja stuðningskilti eða myndir út í glugga, flagga á fimmtudeginum.
Hægt er að nálgast blöðrur eftir hádegi á fimmtudag í verslunum og fl. stöðum.


Eurovision tilboð í Húsasmiðjunni. Íslenskur fáni á 99 kr meðan birgðir endast.

Eurovison tilboð í Olís. Hamborgarafjölskyldutilboð með coke - 2 l coke og flögur - Ís úr vél og fleira   -  Frír Candyflos í boði Olís við Olís milli kl 16 0g 18.

Eurovison tilboð í Samkaup Úrval. ATH. Lokum 18.30 fimmtudaginn 22.mai
Góa Bitar Hraun /Æði 169.-  50% afsláttur af nammibar fimmtudag föstud og laugardag

Sprite/Sprite zero 99.-  Stjörnusnakk Papriku og Ostastjörnur 149.-  Ásamt mörgum öðrum tilboðum og nýi Eurobandsdiskurinn er til sölu í búðinni.


Fimmtudagur 22. maí. - Flaggað í byggðarlaginu
16.00 Candyflos í boði Olís - Eurovisionþorps og 10 ára afmælisblöðrum dreift.
18.00 Fjölskylduskrúðganga frá Ráðhúsi að íþróttahúsi. - Listamenn Díónýsíu taka þátt. Mætum með fána , veifur, hatta og skraut. Skrúðgangan verður tekin upp.
19.00 Keppnin á skjá í íþróttahúsinu- heppnir fá diska Eurobandsins og árituð veggpsjöld
Pizzur til sölu á staðnum - Getraunir -  Videoblogg frá Friðrik Ómari sýnt.
Þetta kvöld er í boði Félagsmiðstöðvar, Stuðningshóps og Sparisjóðs Svarfdæla

Föstudagur 23. maí
23.30
Upphitunarkvöld á Bakaríinu - DJ Hulio með nýju og gömlu Eurovision lögin.


Laugardagur
24. maí - Flöggum ef að ísland kemst áfram.
11.00 - 14.00
Vorhátíð í Dalvíkurskóla - Allir velkomnir.
14.00 Dalvík/Reynir - Leiknir knattspyrnuleikur ( Væntanlega á Árskógsvelli)
19.00 Ef Ísland kemst áfram - Verður horft á keppnina í Íþróttahúsinu á Risaskjá

23.00 Eurovision dansleikur í Víkurröst  fram eftir nóttu - DJ Hulio

Sunnudagur 25. maí
Á Degi barnsins,  ætlum við að koma saman "austur á sandi",  með skóflur, fötur og form og byggja sandkastala og fleira. Leikir og sprell undir stjórn hins eina sanna Adda Sím.

*** Sjö listamenn dvelja á Húsabakka næstu 10 daga á vegum Díónýsía. Íbúum er frjálst að hitta þau þar og vinna með þeim. Listamennirnir taka þátt í Eurovision þorpinu m.a skrúðgöngunni. Takið vel á móti þeim og nýtið ykkur tækifærið til að vinna með þeim næstu daga.

 

Hér er slóðin á stuðningsmyndbandið -  http://www.youtube.com/user/eurobandmusic  


Félagsmiðstöðin - Dalvíkurbyggð - Stuðningshópur Friðriks Ómars.