Ester Jana 5 ára

Ester Jana 5 ára

Í dag þann 13. nóvember er hún Ester Jana 5 ára. Af því tilefni bjó hún sér til glæsilega prinsessukórónu og var dagatalsstjóri dagsins þar sem reiknað var með að hún væri alveg með á hreinu hvaða stóri dagur væri í dag, enda var hún búin að telja niður dagana að þessum merkis degi ásamt Guðmundi Árna vini sínum sem átti einmitt afmæli sl. laugardag Í þeirra huga áttu þau afmæli á sama tíma Estar Jana fór síðan út og flaggaði ísleska fánanum í tilefni dagsins og að sjálfsögðu var svo afmælissöngurinn sunginn fyrir hana Við óskum elsku Ester Jönu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með afmælið