Ert þú með hugmynd að góðu atvinnutækifæri?

Nýsköpunarhelgin 13.-15. febrúar nk. er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og atvinnulífsins. Einstaklingar með hugmyndir um atvinnu og nýsköpun koma saman til að skapa ný störf í samfélaginu, hvort heldur sem um er að ræða í starfandi fyrirtækjum eða í nýjum fyrirtækjum. Ekkert þátttökugjald og opið öllum eldri en 18 ára.

Markmiðið er að fá fólk til að koma saman og vinna að nýjum (eða gömlum) hugmyndum sem gætu endað sem fyrirtaks viðskiptaáætlun og avinnu- skapandi verkefni. Í stað kyrrstöðu sækjum við fram. Samvinna er lykill helgarinnar.

Helgin er hugsuð fyrir alla áhugasama, 18 ára og eldri sem vilja hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hvort sem það eru þeirra eigin hugmyndir eða annarra áhugasamra einstaklinga um atvinnutækifæri. Hvort heldur sem hugmyndin er gömul eða ný. Þetta er einstakt tækifæri. Það kostar ekkert að taka þátt.

Helgin opnar kl. 17:00 á föstudeginum en byrjar formlega kl. 18:00 og stendur til kl 22:30 um kvöldið. Laugardagur frá 9:00-22:00, sunnudagur 10:00-18:00. Dagskráin byggist á fólkinu sem þú ert með í hóp, hugmyndinni og framgangi hennar. Stutt erindi eru flutt til fræðslu og hvatningar við vinnuna.

Allar nánari upplýsingar er að finna á www.ana.is