Erla, Svala, Haukur, Hrafn og fleiri fá afslátt

Erla, Svala, Haukur, Hrafn og fleiri fá afslátt

Arna, Hrafn, Svala, Örn, Erla, Haukur, Svana, Ari, Valur, Svanur, Már, Ernir, Lóa, Gaukur, Orri, Ugla, Þröstur og fleiri sem eru svo heppnir að bera fuglanöfn fá núna um helgina sérstakan afslátt á sýninguna Friðland fuglanna á Húsabakka.

Afslátturinn upp á heilar 200 krónur gildir einnig um þá sem heita samsettum nöfnum þar sem fuglar koma við sögu s.s. Svanfríður, Arngrímur og Hrafnhildur og eins þeir sem heita tvínefnum s.s. Jón Már eða Guðrún Erla.

 

Tilboðið gildir yfir fiskidagshelgina á Dalvík en í dag 12. ágúst veitir Hjörleifur Hjartarson gestum leiðsögn um sýninguna. Leiðsagnir hefjast kl 1., 2., 3 og 4.

 
Ingvi Hrafn fær afslátt ef hann kemur í dag