Öldugata 31, Árskógssandi Drög að breytingu á deiliskipulagi

Öldugata 31, Árskógssandi Drög að breytingu á deiliskipulagi

Öldugata 31, Árskógssandi
Drög að breytingu á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir hér með skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi fyrir athafna-, verslunar-, þjónustu- og íbúðarsvæði á Árskógssandi.
Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum nr. 31, 33 og 35 við Öldugötu. Skipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð sem fær númerið 31 og verður tæplega 20.000 m2 að flatarmáli. Gert er ráð fyrir að hámarks byggingarmagn á sameinaðri lóð verði 11.000 – 12.000 m2 . Hámarksvegghæð bygginga verður 8 m og hámarksmænishæð 11 m.
Skipulagstillöguna má nálgast hér og skýringarmyndir hér.

Tillagan verður jafnframt aðgengileg í Ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is frá 26.febrúar – 19.mars 2024.
Hægt er að skila inn athugasemdum um skipulagstillöguna á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Umhverfissviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt til og með 19.mars 2024.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.