Endurnýjun á umsóknum vegna húsnæðisstuðnings 15-17 ára barna

Endurnýjun á umsóknum vegna húsnæðisstuðnings 15-17 ára barna

Foreldrar 15-17 ára barna sem fá sérstakan húsnæðisstuðning eru minntir á að endurnýja þarf umsókn í upphafi hverrar annar.  Einnig þarf vottorð um skólavist sé fyrra vottorð runnið út.  MA gefur til að mynda út vottorð um skólavist fyrir allan veturinn.  VMA gefur aðeins út vottorð fyrir hverja önn fyrir sig.
Umsóknum skal skilað rafrænt á „Mín Dalvíkurbyggð“, íbúagátt Dalvíkurbyggðar.