Eldri borgarar sýna handverk

Árleg handverkssýning félagsstarfs eldri borgara í Dalvíkurbyggð verður á Dalbæ sunnudaginn 26. maí kl. 14:00 - 18:00 og mánudaginn 27. maí kl. 13:00 - 17:00.

Sýningin er öllum opin og ókeypis.

Kaffisala til ágóða fyrir félagsstarfið verður á sunnudaginn frá kl. 14:00 - 17:00.