Ein af 10 bestu ferðum á Íslandi

Síðan Tripadvisor.com hefur nú gefið út lista yfir 10 bestu ferðir á Íslandi og er Arctic Whale Whatcing, hvalaskoðunarfyrirtæki Freys Antonssonar og Silju Pálsdóttur þar í efsta sæti. Tripadvisor.com sérhæfir sig í upplýsingum um ferðaþjónustu um allan heim og gefur reglulega út lista yfir mest spennandi ferðir í ýmsum löndum en það eru ferðamennirnir sjálfir sem gefa einkunn. Þetta er því frábær árangur hjá þessu unga fyrirtæki.  Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér frekar þessa síðu er hægt að fara inná www.tripadvisor.com.