Eftirlits- og öryggiskerfi við Dalvíkurhöfn

Á næstu dögum verður tekið í notkun eftirlitskerfi með vefmyndavélum fyrir Dalvíkurhöfn. Vefmyndavélunum er ætlað að sinna öryggisgæslu í Dalvíkurhöfn allan sólarhringinn og mun upptekið efni geymt í nokkurn tíma ef ske kynni að skoða þurfi einstök atvik.


Svæðið sem hér um ræðir eru syðri – og nyrðri hafnargarðurinn ásamt ferjubryggju og smábátaaðstöðu. 

Þorsteinn Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs