Dreymir þig um að verða leikari?


Dreymir þig um að verða leikari? Ef svo er skaltu ekki láta þig vanta á leiklistarnámskeiðið hér í Dalvík í sumar.

Boðið er uppá einstakt tækifæri fyrir annars vegar börn og hins vegar unglinga þar sem þau geta fengið að spreyta sig á hinum ýmsu þáttum leiklistarinnar.

Námskeiðið er tvær vikur og verður afraksturinn, leiksýning, opin öllum í lokin.

Ef þú hefur áhuga, ekki hika við að skrá þig !

Hlökkum til að sjá ÞIG í sumar 


Tímabil: 24.júní - 5. júlí
Aldur: 9-12 ára frá kl. 13:00-17:00
13-16 ára frá 18:00-22:00
Verð: 13.000 kr.

Skráning fer fram á: asi.logason@gmail.com  eða julsgun@gmail.com