Díónýsía listamenn dvelja á Húsabakka

Sex listamenn á vegum Díónýsíu munu dvelja á Húsabakka næstu tíu daga. Íbúum Dalvíkurbyggðar er velkomið að heimsækja þau og starfa með þeim hvenær sem er á þessum tíma. Um er að ræða mjög fjölbreyttan hóp listamanna og liggur áhugasvið þeirra víða. Þrjú þeirra eru íslensk en þrjú koma erlendis frá. Hópurinn ætlar að kynna sig annað kvöld eftir skrúðgönguna frá Ráðhúsinu í íþróttahúsið.