Deiliskipulag Íþróttasvæðis á Dalvík, kynningarfundur

Kynningarfundur um deiliskipulag Íþróttasvæðis á Dalvík verður haldinn mánudaginn 19. mars kl. 17:00 – 19:00 í Bergi.
Á fundinum verða drög að deiliskipulagi Íþróttasvæðis kynnt fyrir fundarmönnum ásamt greinargerð sem því fylgir. Deiliskipulagið afmarkast af Svarfaðarbraut, Mímisvegi, Skíðabraut og línu sem er dreginn fyrir sunnan „gömlu fjárhúsin“ til norðvesturs og niður með opna svæðinu sunnan Dalbrautar og Sunnubrautar að Svarfaðarbraut.


Fundurinn er öllum opinn og eru bæjarbúar, sem láta skipulagsmál sig varða, eindregið hvattir til þess að mæta.

Greinargerðin og uppdrátturinn