Deildarstjóra vantar í leikskólann Krílakot

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf sem fyrst. Leitað er eftir einstaklingum með mikinn metnað og áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi starf. Skólar í Dalvíkurbyggð eru Grænfánaskólar og starfa eftir hugmyndafræði
Uppbyggingastefnunnar. Gildi leikskólans eru Gleði, sköpun, þor.  Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
• Góð skipulags- og leiðtogahæfni
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sterk þörf til að ná árangri í starfi
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hefur virðingu, jákvæðni, metnað og umhyggju að leiðarljósi
• Reglusemi og samviskusemi
• Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 20 mars 2016

Umsóknum, ásamt ferilskrá, skal skilað til leikskólastjóra, Drífu Þórarinsdóttur, á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is . Nánari upplýsingar veitir Drífa í síma 460 4950 og á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is