Dalvíkurskóli auglýsir eftir einstaklingi í framtíðarstarf skólaritara frá og með 1. ágúst 2026. Starfshlutfall er 83%. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Einkunnarorð Dalvíkurskóla eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn er teymiskennsluskóli, vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans.
Helstu verkefni:
- Utanumhald um ýmsar nemendaskráningar, t.d. áskriftir, veikindi, slys, o.fl.
- Skjalavarsla í OneSystem skjalavistunarkerfi og í persónumöppum.
- Venjubundin skrifstofuþjónusta, t.d. símsvörun, ljósritun/prentun, svörun fyrirspurna o.fl.
- Umsjón með skrifstofuvörum, móttaka og birgðahald
- Uppsetning vitnisburða, stundaskráa og aðstoð í Mentor
- Daglegt utanumhald skólaaksturs og er í samskiptum við bílstjóra og foreldra.
- Móttaka á skrifstofu grunnskóla
- Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking í notkun skráningarkerfa æskileg, s.s. Mentor, Nemendagrunnur og OneSystem kerfisins.
- Góð færni í notkun helstu ritvinnsluforrita og töflureiknis.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Hreint sakavottorð.
Auk ofangreindra hæfniskrafna er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2026
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).
Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, sími 460 4980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is