Dalvíkurskóla vantar þroskaþjálfa í tímabundna afleysingu

Dalvíkurskóla vantar þroskaþjálfa í tímabundna afleysingu. Umsóknarfrestur er til 30. janúar

Hæfniskröfur:
- Þroskaþjáfamenntun eða önnur uppeldismenntun
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum

Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Í skólanum er verið að vinna að nokkrum þróunarverkefnum svo sem Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (sem gengur út á það efla kennara í stærðfræðikennslu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.


Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is  símar 460 4980 og 863 1329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildastjóri kata@dalvikurbyggd.is  símar 460 4980 og 847 9810. Friðrik Arnarsson deildastjóri fridrik@dalvikurbyggd.is  460 4980 og 849 0980.