Dalvíkurbyggð - Umsókn í leikskóla

Sækja þarf um leikskóla á rafrænu formi á heimasíðum leikskólanna eða á http://min.dalvikurbyggd.is


Foreldrar sem óska eftir leikskólaplássi fyrir börn sín fyrir skólaárið 2015-2016 þurfa að skila inn umsókn eigi síðar en 15. mars.


Innritun fyrir komandi skólaár hefst í lok mars og fá foreldrar senda tilkynningu í tölvupósti með upplýsingum s.s. um tímasetningar og fyrirkomulag aðlögunar barna. Tímasetning aðlögunar ræðst aðallega af tveim þáttum þ.e. sumarlokun leikskólans og uppsögnum barna af elsta árgangi. Fjöldi barna í skóla ræðst af stærð hans og lýkur innritun þegar þeim barnafjölda hefur verið náð. Ef börn hætta í leikskólanum yfir vetrarmánuðina eru ný börn innrituð.