Dalvíkurbyggð og Greenstone ehf. undirrita viljayfirlýsingu

Dalvíkurbyggð og Greenstone ehf. undirrita viljayfirlýsingu

Dalvíkurbyggð hefur ritað undir viljayfirlýsingu við Greenstone ehf. um byggingu allt að 50.000 fermetra gagnaver á lóð sveitarfélagsins. Viljayfirlýsingin stendur til þess að Dalvíkurbyggð mun leggja til lóð undir gagnaver og Greenstone ehf. mun sjá um kynningu á möguleikum sveitarfélagsins í þessu efni, hönnun og væntanlega byggingu gagnavers. Svanfríður Inga Jónasdóttir bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar og Sveinn Óskar Sigurðsson frá  Greenstone ehf. skrifuðu undir viljayfirlýsinguna. Geir Sveinsson og Mark Gerard frá Greenstone ehf. voru með í för og fengu leiðsagnir um þær lóðir sem kæmu til greina frá Þorsteini Björnssyni bæjartæknifræðingi Dalvíkurbyggðar
Þegar hefur Greenstone ehf. ritað undir viljayfirlýsingu við Landsvirkjun þess efnis að orkufyrirtækið útvegi Greenstone a.m.k. 50 MW af orku.
Um þessar mundir er hafin lagning nýs ljósleiðara til Evrópu frá Íslandi og aðrar gagnatengingar eru í augsýn er tengja landið bæði við Evrópu og N-Ameríku. Lögð er áhersla á að lagning nýs ljósleiðara til Bandaríkjanna beint frá Íslandi sé talin nauðsynlegur í þessu efni. Slíkt mun auka á möguleika á að alþjóðleg fyrirtæki sjái sér fært að staðsetja gagnaver sín á Íslandi og nýta þannig vistvæna orku landsins til að kæla og keyra mengunarlausan tæknibúnað þeirra.
Vænta má að allt að 20 bein störf geti skapast í sveitarfélaginu og allt að 20 óbein störf bæði í sveitarfélaginu og nágrannasveitarfélögum Dalvíkurbyggðar.