Dalvíkurbyggð mætir Borgarbyggð í Útsvari á föstudagskvöld

Dalvíkurbyggð og Borgarbyggð mætast í Útsvari spurningaþætti á Rúv á föstudagskvöld. Í liði Dalvíkurbyggðar eru aftur þeir Magni Óskarsson og Hjálmar Hjálmarsson en ný í hópinn kemur Elín Björk Unnarsdóttir. Við styðjum okkar fólk til sigurs.