Dalvíkurbyggð keppir í Útsvarinu á morgun

Á morgun, föstudaginn 5. febrúar, mun lið Dalvíkurbyggðar keppa í annarri umferð Útsvarsins, spurningakeppni sveitarfélaganna. Andstæðingur Dalvíkurbyggðar verður að þessu sinni Fjallabyggð og því er um nágrannaslag að ræða.

Liðið er óbreytt frá síðustu keppni, en liðið skipa Elín Unnarsdóttir, Magni Óskarsson og Klemenz Bjarki Gunnarsson.

Við óskum liðinu góðs gengis í keppninni.