Dalvíkurbyggð keppir í Útsvarinu

Dalvíkurbyggð tekur þátt í Útsvarinu, spurningakeppni Ríkisútvarpsins, nú í vetur en þetta er í 9. sinn sem keppnin fer fram. Að þessu sinni keppa þau Jón Björn Ríkharðsson, Árni Helgason og Ylfa Mist Helgadóttir fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og óskum við þeim alls hins besta.