Dalvíkurbyggð í Útsvarinu – viltu vera með?

Dalvíkurbyggð í Útsvarinu – viltu vera með?

Dalvíkurbyggð hefur verið valið til þátttöku í spurningaþættinum Útsvari sem fram fer í sjónvarpi Rúv í vetur en þetta er í ellefta sinn sem þátturinn er á dagskrá.

Ýmsir hafa tekið þátt fyrir hönd sveitarfélagsins í gegnum tíðina og staðið sig með mikilli prýði og nú leitar sveitarfélagið  enn að keppendum til að taka þátt í vetur. Ef þig langar til að vera með eða veist um einhvern sem ætti að vera með þá vinsamlegast sendið inn tillögu á netfangið margretv@dalvikurbyggd.is fyrir 1. september  2017