Dalvíkurbyggð í 6. sæti af 38

Tímaritið Vísbending, vikurit um viðskipti og efnahagsmál, birtir á hverju ári lista yfir gengi og stöðu sveitarfélaganna í landinu. Í fyrra var listinn birtur undir yfirskriftinni: Draumasveitarfélagið. Þá var Dalvíkurbyggð í 7. sæti. Tímaritið hefur nú birt nýjan lista og nú er Dalvíkurbyggð komin í 6. sæti, af 38 og hefur því hækkað um sæti á milli ára.

Tímaritið byggir mat sitt á tölum úr árbók sveitarfélaga. Einkum er litið á skattheimtu sveitarfélagsins, afkomu sem hlutfall af tekjum, hlutfall skulda af tekjum, breytingar á fjölda íbúa og veltufjárhlutfall. Einnig er litið til ábyrgða vegna einkaframkvæmda. Það sveitarfélag sem var í efsta sæti síðast, Garðabær, fellur niður í 8. sæti núna m.a. vegna þess hve veltufjárhlutfall þess var hátt, en það er ekki talið eiga að vera markmið sveitarfélaga að skila endilega stórgróða.