Dalvíkurbyggð auglýsir tvær bifreiðar til sölu

Dalvíkurbyggð auglýsir tvær bifreiðar til sölu

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir tilboðum í tvær bifreiðar sem hafa verið í notkun á Eigna- og framkvæmdadeild sveitarfélagsins.

Subaru Forester AO-465. Fólksbíll, grár. Árgerð 2006. Ekinn 282.000 km.

Toyota Hilux YJ-175. Pallbíll, grár. Árgerð 2006. Ekinn 112.000 km.

Bílarnir verða til sýnis og skoðunar við Áhaldahús að Sandskeiði 26 frá 20. febrúar til og með 6. mars og þar geta starfsmenn Dalvíkurbyggðar svarað spurningum um ástand þeirra. Einnig má hafa samband í síma 853-0220.

Óskað er eftir bindandi tilboðum í bifreiðarnar í því ástandi sem þær eru. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Eingreiðsla vegna kaupa á bifreið skal fara fram fyrir afhendingu.

Tilboð í bifreiðarnar skal senda á Helgu Írisi Ingólfsdóttur Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar á helgairis@dalvikurbyggd.is fyrir þriðjudaginn 7. mars 2023.