Dalvíkurbyggð auglýsir til leigu skrifstofuhúsnæði

Dalvíkurbyggð auglýsir skrifstofuhúsnæði á 2. hæð Ráðhúss Dalvíkur til leigu. Um er að ræða þrjár skrifstofur, á bilinu frá 10 fm og upp í 24 fm að stærð, ásamt gangi, snyrtingu og geymslu. Húsnæðið er laust til leigu nú þegar.
Ráðhús Dalvíkur er staðsett í hjarta Dalvíkur. Í húsinu er starfssemi Skrifstofa Dalvíkurbyggðar, Sparisjóðs Norðurlands, VÍS, KPMG og fleira. Ljósleiðaratenging er í húsinu.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is  eða í síma 460 4908.