Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins og reiknings. Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota til og með 15. janúar 2025.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera sem og starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 25. nóvember.

Skráning fer fram á netfanginu dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Nánari upplýsingar gefur Friðjón Árni Sigurvinsson upplýsingafulltrúi í síma 460 4900 eða í gegnum netfangið fridjon@dalvikurbyggd.is