Dalvíkurbyggð auglýsir eftir rekstraraðila á félagsheimilinu Rimum og aðliggjandi tjaldsvæði

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir rekstraraðila á félagsheimilinu Rimum og aðliggjandi tjaldsvæði

Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í umsjón og rekstur á félagsheimilinu Rimum ásamt aðliggjandi tjaldsvæði.  Um er að ræða rekstur á núverandi aðstöðu gegn leigugreiðslu með leigusamningi til allt að 10 ára. Húsnæðið og tjaldsvæði hentar vel fyrir ýmisskonar starfsemi svo sem menningarstarf, félagsstarf, ráðstefnur, veislur, ættarmót og fl.

Skilyrði er að á vegum rekstraraðila sé staðarhaldari sem hefur fasta búsetu í sveitarfélaginu.  

Áhugasamir aðilar skulu senda fyrirspurnir á tilboðstíma er varða vettvangsskoðun og annan aðbúnað fyrir lok 15. ágúst 2018 til Fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar á netfangið hlynur@dalvikurbyggd.is merkt „Rimar 2018“

Tilboðsfrestur er til og með 20. ágúst 2018.  Með tilboði skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um áætlaða starfsemi og notkun fasteignarinnar og tjaldsvæðis.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.