Dalvík/Reynir áfram í bikarkeppninni

Mynd fengin af Facebook-síðu Dalvíkur/Reynis
Mynd fengin af Facebook-síðu Dalvíkur/Reynis

Lið Dalvíkur/Reynis fór í gærkvöldi áfram í bikarkeppninni í knattspyrnu, Mjólkurbikarkeppninni, þegar þeir unnu lið Þórs 2:0 á Dalvíkurvelli.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á RÚV og er aðgengilegur fyrir þá sem vilja HÉR.

Okkar heimalið leikur í 3. deild en Þórsarar spila næst efstu deild, Lengjudeildinni.
Sigurinn var sanngjarn og lið Dalvíkur/Reynis er komið í 16 liða úrslit bikarkeppninnar.