Dagur tónlistarinnar

Dagur tónlistarinnar

Í tilefni af Degi tónlistarinnar, þriðjudaginn 9. nóvember kl. 10:30 verður haldin uppákoma í Menningarhúsinu Bergi. Þá munu börn fædd 2007, 2006 og 2005 á leikskólunum Krílakoti, Kátakoti og Leikbæ vera með atriði. En þau eru þátttakendur í verkefninu Tónar eiga töframál og er það Þuríður Sigurðardóttir (Þura) leikskólakennari á Krílakoti sem sér um kennsluna.
Kaldo Kiis skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar stjórnar uppákomunni, en hann er jafnframt verkefnastjóri Tóna eiga töframál.
Öllum foreldrum, öfum og ömmum, yngri systkinum og öðrum áhugasömum er boðið að koma og gleðjast með okkur. Yngri börnin á Krílakoti (fædd 2008 og 2009) munu einnig koma og horfa á.