Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í dag

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag, miðvikudaginn 6. febrúar. Dagurinn er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Deginum er fagnað í leikskólum Dalvíkurbyggðar. Á Kátakoti er foreldrum boðið að taka þátt í starfi dagsins, á Krílakoti er opið hús frá kl. 14:00-16:00 og á Kötlukoti eru unnin ýmis verkefni tengd deginum og t.d. sá leikskólinn um gæðastund í morgun þar sem öllum nemendum skólans var boðið.