Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í dag

Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í dag

Í dag var Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur og voru leikskólarnir með ýmislegt á prjónunum af því tilefni. Á Krílakoti fóru börnin í skrúðgöngu og komu svo við á bæjarskrifstofunni og sungu nokkur lög. Undir söngnum spiluðu svo börnin á hin ýmsu hljóðfæri sem þau bjuggu til sjálf.

Á Leikbæ skreyttu börning leikskólann með blómum sem þau hafa verið að föndra síðustu daga ásamt því að þau fengu að mála á glugga og gerða skreytingar úr endurnítarlegum efnivið. Hérna er hægt að skoða myndir frá Leikbæ.