Dagur leikskólans

Dagur leikskólans

Í dag 6. febrúar er dagur leikskólans.
Dagurinn er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Í tilefni dagsins höfum við, ásamt Krílakoti, hengt upp myndir og afrakstur af vinnu barnanna upp á vegg í búðinni. Myndir þessar munu hanga uppi eitthvað fram í næstu viku og því hvet ég ykkur til að fara og kíkja :)