Dagur leikskólans

Dagur leikskólans

Í dag héldum við upp á dag leikskólans á Kátakoti með því að bjóða foreldrum og öðrum bæjarbúum á opið hús. Við buðum upp á kaffi og skúffuköku sem Ása bakaði og sýndum m.a. nýja húsnæðið okkar. Sigrún fór ásamt fjórum börnum sem valin voru af handahófi á fund Svanfríðar bæjarstjóra, ásamt fulltrúum og börnum hinna tveggja leikskóla Dalvíkurbyggðar, og færðu henni skjal með gullkornum leikskólabarna víðsvegar um landið. Fréttamaður DB blaðsins var einnig á svæðinu og tók myndir.