Dagur læsis - leikskólalæsi á bókasafninu

Í tilefni af Degi læsis, í dag, miðvikudaginn 8. september, munu hópar frá leikskólunum Krílakoti heimsækja bókasafnið og vinna þar í verkefninu leikskólalæsi. Leikskólalæsi er þróunarverkefni sem allir leikskólar sveitarfélagins taka þátt í og gengur út á bókavinnu, málþroskaörvun og tengingu tungumálsins við lestur og ritun.

Áhugasamir eru velkomnir á bókasafnið til að fylgjast með vinnu leikskólabarnanna en hópstjóri frá leikskólanum heldur utan um vinnu hvers hóps og stýrir henni.

Tímasetningar:

Kl. 10.00 elstu börnin á Skakkalandi
Kl. 10.30 elstu börnin á Hólakoti