Dagskrá 17. júní

Dagskrá 17. júní

17. júní hátíð 2016

Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
 
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
  
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.
Andlitsmálning – ókeypis andlitsmálning frá 12:00 fyrir krakka áður en skrúðganga hefst.

Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða
Tónlistaratriði
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

Að lokinni hátíðarstund við Berg:

Sýningaropnun í Bergi klukkan 14:00-
Gleðigjafar, Hefðarkonur og Merkismenn eru myndir sem Sigríður Jóhannsdóttir og Leifur Breiðfjörð hafa unnið að á liðnum árum og sýna á glaðværan hátt framsækið og virðulegt fólk.

Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta
undir börnum við Krílakot.

Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
Sápubolti, vatnsrennibraut og fleira skemmtilegt. Gamla tívolístemningin endurvakin.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.


Hátíðarkaffi - Barna– og unglinaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund.
Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir
börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.

 

Kl. 18:30 - 21:00
Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir - frítt inn

Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina
í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

ÍÞRÓTTA– OG ÆSKULÝÐSRÁÐ DALVÍKURBYGGÐAR
17. JÚNÍ STARFSHÓPUR