Frístundalóðir að Hamri auglýstar til úthlutunar

Frístundalóðir að Hamri auglýstar til úthlutunar

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir nú frístundalóðir lausar til úthlutunar í frístundabyggðinni að Hamri Dalvíkurbyggð. Um er að ræða tíu lóðir við Garðatröð og eina lóð við Álfhólströð. Stærð lóðanna er frá 1.300 m2 upp í 8.400 m2 og er reiknað með að lóðirnar verði byggingarhæfar nú í júlí mánuði. Verða þær í auglýsingu til 10. júlí nk. og verða umsóknir teknar fyrir í framkvæmdaráði Dalvíkurbyggðar að þeim tíma loknum.

Nánari upplýsingar um lóðirnar má finna hér.