Nýjar lóðir í auglýsingu.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir eftirtaldar nýjar lóðir lausar til úthlutunar:

Birkihólar 1-3 – lóð fyrir parhús á einni hæð.

Birkihólar 5-7 – lóð fyrir parhús á einni hæð.

Birkihólar 2 – lóð fyrir einbýlishús á einni hæð.

Birkihólar 4 – lóð fyrir einbýlishús á einni hæð.

Birkihólar 6 – lóð fyrir einbýlishús á einni hæð.

Karlsbraut 4 – lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum.

Karlsbraut 14 – lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum.

Karlsbraut 30 – lóð fyrir einbýlishús á einni hæð.

Skógarhólar 19 – lóð fyrir þriggja íbúða raðhús á einni hæð.

Ægisgata 8-14 – lóð fyrir fjögurra íbúða raðhús á einni hæð.

Ægisgata 16-18 – lóð fyrir parhús á einni hæð.

Lóðirnar eru auglýstar frá og með 27.mars 2026 til og með 24.apríl 2026.

Umsóknir verða teknar til afgreiðslu í framkvæmdaráði að þeim tíma loknum og lóðum úthlutað í samræmi við úthlutunarreglur Dalvíkurbyggðar. Ef engin umsókn berst um tiltekna lóð innan þessa tímaramma mun viðkomandi lóð fara á lista yfir lausar lóðir og verður úthlutað til fyrsta umsækjanda í samræmi við úthlutunarreglur.

Sótt er um lóðirnar í þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.