Bjórböðin, Árskógssandi Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir verslun og þjónustu

Bjórböðin, Árskógssandi Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir verslun og þjónustu

Bjórböðin, Árskógssandi
Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir verslun og þjónustu

Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við deiliskipulag fyrir verslunar- og þjónustusvæði á Árskógssandi. Umrætt svæði mun ná yfir lóðir nr. 26 og 37 við Öldugötu og 29 og 31 við Ægisgötu, ásamt hluta af óútvísuðu landi Dalvíkurbyggðar.

Áformin kalla á breytingu á gildandi aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar og hefur verið gert ráð fyrir þeirri breytingu í nýju aðalskipulagi sem verður auglýst á næstunni.

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Skipulagslýsinguna má nálgast hér og á Skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is (mál nr. 367/2026).

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að senda inn ábendingar við skipulagslýsinguna er veittur til 16.apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi