Bygging nýs vatnstanks við Upsa hefst á næstunni

Bygging nýs vatnstanks við Upsa hefst á næstunni

Bygging nýs vatnstanks við Upsa hefst á næstunni

Dalvíkurbyggð hefur samið við Tréverk ehf. á Dalvík um byggingu nýs vatnstanks við Upsa sem mun styrkja rekstraröryggi vatnsveitu sveitarfélagsins til framtíðar. Nýi tankurinn verður staðsettur við Upsaveg 2.
Verkið var boðið út fyrr á árinu og bárust þrjú tilboð. Að lokinni yfirferð var ákveðið að ganga til samninga við Tréverk ehf. og var sú ákvörðun staðfest á síðasta fundi sveitarstjórnar. Samningsfjárhæð verksins nemur rúmum 125 milljónum króna.

Mikilvæg framkvæmd fyrir innviði sveitarfélagsins

Framkvæmdin felur meðal annars í sér jarðvinnu, lagningu lagna og uppsteypu á nýjum vatnstanki með um 900 rúmmetra vatnsgeymslu, auk alls tilheyrandi frágangs samkvæmt útboðsgögnum.
Um er að ræða mikilvæga framkvæmd fyrir sveitarfélagið og er það mikið ánægjuefni að framkvæmdir við byggingu nýs vatnstanks séu að hefjast. Tankurinn mun bæta rekstraröryggi vatnsveitu Dalvíkurbyggðar til muna og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.
Í framhaldinu þarf sveitarfélagið jafnframt að huga að frekari vatnsöflun til framtíðar, meðal annars með tilliti til fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar sunnan Dalvíkur og ofan Böggvisbrautar, á Árskógsströnd, sem og uppbyggingar atvinnulífs á Hauganesi þar sem nýjar lóðir eru fyrirhugaðar.

Framkvæmdatími

Áætlað er að framkvæmdir hefjist á næstunni og að nýr steyptur vatnstankur verði tekinn í notkun 1. september næstkomandi. Gert er ráð fyrir að lokafrágangi lóðar verði að fullu lokið 1. september 2027.
Umsjón með útboðinu hafði Faglausn ehf. á Akureyri.