Byggðakvóti fisveiðiárið 2013/2014

Borist hafa upplýsingar frá atvinnuvegaráðuneytinu um byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014. Samkvæmt þeim fær Dalvík 99 þorskígildistonn, Hauganes 15 og Árskógssandur 300. Á síðasta fisveiðiári fékk Dalvík 300 þorskígildistonn en ekkert á fiskveiðiárinu 2011/2012. Sveiflurnar hafa því verið miklar á Dalvík. Hauganes og Árskógssandur hafa hinsvegar verið með sama tonnafjölda öll þessi ár.

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa er efnislega óbreytt frá fyrra ári. Ef sveitarfélög vilja setja sérstök skilyrði umfram ákvæði reglugerðarinnar þurfa þau að skila rökstuddum tillögum til ráðuneytisins eigi síðar en 1. nóvember nk. Atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar mun fara yfir reglugerðarákvæðin og gera þá mögulega tillögur um breytingar til sveitarstjórnar.