Brúsmót á Rimum

Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður heldur Brúsmót á Rimum í Svarfaðardal laugardagskvöldið 17. nóvember n.k. Mótið hefst kl. 20:30. Spilað verður eftir atbrúsreglum eins og á heimsmeistaramótinu. Ekki verður boðið upp á kennslu fyrir byrjendur. Vegleg verðlaun í boði, veitingar frá kvenfélaginu Tilraun að spilamennsku lokinni. Mótsgjald er 500 kr. á mann, ekki posi á staðnum. Allir velkomnir.

Komum saman, höfum gaman og spilum Brús!

Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður.