Brunaæfing 9. febrúar

Í dag 9. febrúar var brunaæfing hjá okkur á Leikbæ. Um leið og við heyrðum í reykskynjurunum hlupum við styðstu leið út. Við gerðum allt eins og það væri í raun og veru kviknaði í því var enginn tími til að klæða sig og allir hlupu því út á sokkunum. Það var mikill hávaði og mörgum brá en það stóðu sig allir mjög vel og það tók mjög stutta stund að rýma húsið. Við stóðum svo úti á einagrunardýndum sem við geymum útí bílskúr á meðan Gitta fór yfir það hvort það væru ekki allir komnir út.