Brunaæfing 20. september

Brunaæfing 20. september

Í dag höfðum við brunaæfingu í leikskólanum. Fyrst ræddu kennararnir við börnin um æfinguna og svo kom Villi slökkviliðsstjóri til okkar og spjallaði við börnin. Æfingin gekk mjög vel og börnin voru svo dugleg að fara út þegar bjallan fór í gang. Emmi prófaði svo að fara niður brunastigann framan á húsinu þegar allir voru komnir út og allir horfðu á.