Breyttir fundartímar bæjarstjórnar

Á síðasta fundi bæjarstjórnar þann 3. mars síðastliðinn var samþykkt breyting á 12. gr. samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar þess eðlis að fækka bæjarstjórnarfundum úr tveimur í einn fund á mánuði. Framvegis verða því bæjarstjórnarfundirnir einu sinni í mánuði, þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Næsti fundur verður því 17. mars næstkomandi.